Í lok vinnudags í rækjuverksmiðjunni á Hvammstanga
Starfsfólkið var að ganga frá eftir daginn þegar blaðamaður leit inn í Meleyri. Örn Gíslason vinnslustjóri átti eftir að smúla gólfið. Hvort yrði vinna þarna áfram var þá óvíst.

Skoða úrklippu úr Fréttablaðinu
Rækjuvinnslan hafði gengið nær óslitið á Hvammstanga frá því um 1972. Húnaflói hafði áður verið gjöfull en vorið 2006 var svo lítið af rækju í flóanum að hráefnið í Meleyri átti langt ferðalag að baki. Mest kom frá norskum skipum á veiðum í Barentshafi. Verksmiðjan tók líka við rækju frá Kanada, Grænlandi og Frakklandi.
Fréttablaðið kom í lok vinnudagsins skömmu eftir að öllum 23 starfsmönnunum hafði verið sagt upp. Örn Gíslason vinnslustjóri sagðist helst vilja vera áfram á Hvammstanga. Hann hafði séð rækjuvinnslu stöðvast tímabundið áður og vonaðist til að enn mætti halda áfram ef aðstæður bötnuðu. Þegar samtalinu lauk greip hann aftur til slöngunnar og blaðamaðurinn flýtti sér undan vatninu.
Frumheimild
Fréttablaðið · 3. mars 2006 · bls. 20
„Ein elsta rækjuverksmiðja landsins“