Reykjavík · Ísland Fréttir úr íslenskri sögu
Frásagnir og myndir úr blöðum fyrri ára
Fréttasafn
Slys og mannlíf · Stjórnmál

Eldsvoðinn á Þingvöllum

Ljósmynd af brennandi ráðherrabústaðnum fyllti efri hluta forsíðu Tímans. Daginn eftir brunann vissu lesendur hverjir höfðu farist, en enn var óljóst hvernig eldurinn hafði kviknað.

Birt í Fortíðinni
Tíminn · 11. júlí 1970 · bls. 1
Reykur stígur upp af logandi ráðherrabústaðnum. Þingvallavatn sést í baksýn.
Ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum brennur um nóttina. Gestaskálinn sést vinstra megin og handan við reykinn má greina Þingvallavatn. Myndin er merkt Tímamynd í blaðinu.
Stækka forsíðu Tímans

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Sigríður Björnsdóttir kona hans og fjögurra ára dóttursonur þeirra, Benedikt Vilmundarson, fórust á Þingvöllum aðfaranótt 10. júlí 1970. Á forsíðu Tímans daginn eftir birtust myndir af þeim öllum þremur undir ljósmynd af eldsvoðanum.

Fréttamenn blaðsins óku yfir Mosfellsheiði að Þingvöllum. Utan vegar sáust enn merki um snjó sem hafði fallið um nóttina. Þegar þeir komu að Valhöll lagði reyk af rústum bústaðarins. Skorsteinninn stóð upp úr og bárujárn úr klæðningunni lá sunnan við húsið.

Frumheimild

Tíminn · 11. júlí 1970 · bls. 1
„Forsætisráðherrahjónin og dóttursonur þeirra fórust“

Lesa umfjöllun sama blaðs á bls. 3 á Tímarit.isVísir · endurbirting forsíðu Tímans og frásögn fréttamanna
Fleiri greinar í fréttasafninu