Blaðamaður á æfingu hjá reykköfurunum
Með hlíf fyrir augunum og kút á bakinu fékk Magnús Halldórsson að reyna hvernig gengur að rata um slökkvistöð þegar ekkert sést. Reykkafarinn Kristján Þór Henrysson fór á undan honum.

Stækka myndasíðuna úr Fréttablaðinu
Þeir Magnús og Eyþór Árnason ljósmyndari fylgdust með Kristjáni á vakt hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í janúar 2008. Eftir hádegi á fimmtudegi tóku Kristján og Guðmundur Halldórsson varðstjóri á móti þeim á ný. Á mynd Eyþórs sjást mennirnir fikra sig fram hjá bílunum. Kristján hvílir þungann á aftari fætinum á meðan hann kannar gólfið með þeim fremri.
Á meðan gestirnir voru á stöðinni barst tilkynning um að maður kynni að hafa farið í sjóinn í Nauthólsvík. Kristján og Guðmundur fóru í útkallið á sérstökum köfunarbíl slökkviliðsins. Tilkynningin reyndist ekki eiga við rök að styðjast.
Frumheimild
Fréttablaðið · 20. janúar 2008 · bls. 24
„Með reykinn í fangið“