Einn komst í land af Pourquoi-Pas?
Þegar franska rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? strandaði undan Mýrum 16. september 1936 komst einn skipverji af. Daginn eftir voru teknar ljósmyndir af honum og manninum sem bjargaði honum.

Skoða forsíðu Alþýðublaðsins
Franski landkönnuðurinn Jean-Baptiste Charcot var á heimleið frá Reykjavík þegar skip hans lenti í aftakaveðri. Það strandaði á skerinu Hnokka undan Mýrum. Charcot fórst með félögum sínum. Eugène Gonidec komst einn lífs af og naut aðstoðar Kristjáns Steinars Þórólfssonar frá Straumfirði.
Franski ræðismaðurinn ók á strandstaðinn daginn eftir. Í för með honum var Finnbogi Rútur Valdimarsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, með myndavél sína. Hann tók mynd af Gonidec og Kristjáni Steinari saman. Í fjörunni rak hann líka augun í skrifborð Charcots sem hafði rekið á land.
Frumheimild
Alþýðublaðið · 19. september 1936 · bls. 1
„‚Pourquoi pas?‘ sigldi beint í opinn dauðann“