Reykjavík · Ísland Fréttir úr íslenskri sögu
Frásagnir og myndir úr blöðum fyrri ára
Fréttasafn
Dægurmál · List og menning

Reykjavík varð tvö hundruð ára og bauð borgarbúum í afmæli

Það mátti velja sér ólíkar leiðir til að halda upp á tvö hundruð ára kaupstaðarafmæli Reykjavíkur. Sumir keyptu kandís í gamaldags krambúð, aðrir fóru með togara austur fyrir Viðey.

Birt í Fortíðinni
Morgunblaðið · 19. ágúst 1986 · bls. 28–29
Vigdís Finnbogadóttir gengur með blómvönd innan um fólk á götu í Reykjavík. Davíð Oddsson gengur henni við hlið.
Vigdís Finnbogadóttir forseti og Davíð Oddsson borgarstjóri á göngu í Reykjavík á afmælisdaginn, 18. ágúst 1986. Ljósmynd eftir Kristján A. Einarsson úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Lúðrasveit verkalýðsins lék fyrir utan Kjarvalsstaði laugardaginn 16. ágúst 1986. Þar hófust afmælishöldin með sýningu um lífið í Reykjavík. Inni var búið að koma upp krambúð þar sem gestir gátu fengið kandís og gráfíkjur. Nokkrum skrefum frá henni mátti skoða loftmyndir sem þýski flugherinn tók af Vatnsmýrinni á stríðsárunum.

Þennan sama laugardag fór togarinn Ásgeir RE þrjár ferðir með borgarbúa um sundin. Alls fengu tólf hundruð manns að sjá afmælisbarnið frá sjó. Á sjálfum afmælisdeginum, mánudaginn 18. ágúst, kom Vigdís Finnbogadóttir forseti í opinbera heimsókn til Reykjavíkur. Í miðborginni var haldin skemmtun og gestum boðið upp á afmælisköku.

Frumheimild

Morgunblaðið · 19. ágúst 1986 · bls. 28–29
„Saga borgarinnar í máli og mynd á Kjarvalsstöðum“

Opna blaðsíðuna á Tímarit.isListasafn Reykjavíkur · Sýningarskrá og blaðaúrklippur frá 1986Morgunblaðið · Afmælisbarnið skoðað frá sjó, 19. ágúst 1986, bls. 29Reykjavíkurborg · Ljósmynd úr forsetaheimsókninni og frásögn af afmælisdeginum
Fleiri greinar í fréttasafninu